30.04.1970
Neðri deild: 92. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1094 í B-deild Alþingistíðinda. (1350)
50. mál, Siglingamálastofnun ríkisins
Frsm. (Birgir Finnsson):
Herra forseti. Ég vildi aðeins gera hv. þd. grein fyrir því, hvernig afgreiðsla þessa máls og fylgifrv. þess stendur. Eins og hv. þm. er sjálfsagt vel ljóst, hefur þarna orðið árekstur milli d. út af afgreiðslu umræddra mála, þannig að frv. þurfa að fara fyrir Sþ. Ég mætti á fundi hjá sjútvn. hv. Ed. í morgun, og niðurstaðan af þeim fundi varð sú, að það náðist samkomulag um það milli sjútvn. Ed. annars vegar og mín hins vegar að mæla með samþykkt frv. í Sþ. í dag, eins og þau verða eftir afgreiðslu þessa fundar, með einni smábreytingu þó, sem við flytjum, ég og hv. formaður sjútvn. Ed. Þótt þessi frv. þurfi að fara fyrir Sþ., þarf það ekki að torvelda framgang þeirra, eins og nú er komið málum.