13.04.1970
Efri deild: 68. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1095 í B-deild Alþingistíðinda. (1360)
5. mál, skipamælingar
Frsm. (Jón Árm. Héðinsson):
Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. á þskj. 515 hefur umrætt frv. legið nokkuð lengi hér í d., sem stafar af því, að það var í nokkrum tengslum við mál, er d. fékk á sínum tíma, sem var 50. mál Ed., þ. e. a. s. frv. um Siglingamálastofnunina. N. hefur nú afgr. það frv., og til þess að hafa samræmi í texta urðum við að breyta orðalagi, og gerum við það í einni brtt., sem er á þskj. 516. Að öðru leyti er n. sammála um að mæla með frv., þar sem ekki er um efnislegar breytingar að ræða frá gildandi lögum, heldur samræmingaratriði.