16.03.1970
Neðri deild: 60. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1248 í B-deild Alþingistíðinda. (1661)

124. mál, sala Krossalands í Bæjarhreppi, Austur-Skaftafellssýslu

Frsm. (Jónas Pétursson):

Herra forseti. Frv. þetta, um heimild fyrir ríkisstj. til að selja eyðijörðina Krossaland í Bæjarhreppi, hefur legið fyrir landbn. Nd. Hún hefur sent það til umsagnar, svo sem venja er um slík mál, til Landnáms ríkisins og jarðeignadeildar ríkisins. Umsagnir hafa borizt frá báðum þessum aðilum og hafa þeir báðir mælt með því, að Alþ. veiti þessa heimild til að selja þessa eyðijörð, og landbn. hefur orðið sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt, eins og það liggur fyrir.