28.04.1970
Neðri deild: 89. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1332 í B-deild Alþingistíðinda. (1848)
130. mál, aflatryggingasjóður sjávarútvegsins
Birgir Finnsson:
Herra forseti. Þetta frv. hefur áður verið til meðferðar í hv. Nd. og var afgr. héðan til Ed. Í Ed. hefur verið gerð sú breyt. á frv., að aftan við 1. gr. hefur bætzt svo hljóðandi mgr.: „Fjárhæðir þær, sem fram koma í a- og b-lið 1. mgr. og í 2. mgr., skulu breytast í samræmi við fæðislið framfærsluvísitölu frá 1. janúar 1970.“
Það er ljóst, að þessi breyting kemur til með að hafa í för með sér nokkra hækkun á útgjöldum áhafnadeildar hjá aflatryggingasjóði. Um þetta atriði mun hafa verið rætt í sambandi við þá sjómannasamninga, sem gerðir voru um s. l. áramót, og komu þá fram óskir um það frá báðum samningsaðilum, að ákvæði eins og þetta yrði tekið upp í lögin. Sjútvn. hv. d. er sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ. með þessari breyt., þ. e. a. s. óbreytt, eins og það er komið frá hv. Ed. N. er hins vegar ljóst, að síðar mun e. t. v. koma til þess, að auka þurfi tekjur þessa sjóðs, sem greiðir hluta af fæðiskostnaði sjómanna. Það munu þeir aðilar, sem stóðu að sjómannasamningunum um s. l. áramót, gera sér alveg ljóst. Sú viðbót tekna, sem þyrfti að afla sjóðnum, yrði þá að sjálfsögðu tekin af óskiptum afla, eins og gert er með það eina prósent, sem nú stendur undir útgjöldum sjóðsins.
Sjútvn. d. leggur sem sé til, að frv. verði samþ. óbreytt.