26.01.1970
Efri deild: 39. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 211 í B-deild Alþingistíðinda. (185)
138. mál, ráðstafanir í sjávarútvegi vegna breytingar gengis íslenskrar krónu
Bjarni Guðbjörnsson:
Herra forseti. Við 1. þm. Norðurl. v. og ég höfum ritað undir nál. með fyrirvara og byggist það á því, að við erum út af fyrir sig samþykkir þeirri breyt., sem er verið að gera á lögum frá því í des. 1968 um ráðstafanir í sjávarútvegi, en viljum nota þetta tækifæri til þess að leggja áherzlu á það, að þegar það mál var til umr. í d., greiddum við framsóknarmenn atkv. gegn þeirri breyt., sem þá var samþ. og vorum eindregið á móti málinu. Sú breyt., sem þá var gerð, var, eins og komið hefur fram í umr., að tekið var af óskiptum afla og greitt fyrst 10% í stofnfjársjóð fiskiskipa og 17% af fiskverði sem þátttaka í útgerðarkostnaði. Við töldum, að fyrir þann tíma hefðu sjómenn orðið fyrir það mikilli skerðingu á kjörum sínum á undanförnum árum, að það bæri sízt að ráðast á garðinn þar til lækkunar, enda hygg ég, að það sé svo, að ef íslenzka þjóðin hefur ekki efni á að launa sínum sjómönnum sæmilega, þá veit ég ekki, hverjir ættu að geta fengið sæmileg laun, því hvað sem um annað verður sagt, verður sjávarútvegurinn um ókomna áratugi undirstöðuatvinnuvegurinn og það hlýtur að vera kappsmál, að sá atvinnuvegur gangi sem bezt. Við vorum, eins og ég sagði áðan, andvígir þeirri lagasetningu og viljum leggja áherzlu á það hér, enda þótt við teljum þá breyt., sem gert er ráð fyrir í þessu frv., vera til bóta, þar sem hlutfallið, eða 17%, eru færð niður í 11% sem þátttaka í útgerðarkostnaði. Ákvæði til bráðabirgða kemur fram í brtt., og það snertir eins og frsm. gat um eingöngu verðlagningu á rækju. Ég hygg, að verðlagningunni á rækjunni sé þannig háttað, að hún gildi til 30. ágúst 1970 og greitt hafi verið 10 kr. verð fyrir rækjuna. Ef þetta ákvæði til bráðabirgða hefði ekki verið, hefði rækjuverðið í heild hækkað til sjómanna, en mér finnst, að rækjuverðið þurfi að vera 10.50 kr. í staðinn fyrir 10 kr. til þess að halda óbreyttu verði, 12.70 kr. á kg.
Ég endurtek það, að við munum greiða atkv. með þessari breyt., enda þótt eins og ég gat um áðan, við höfum upphaflega verið á móti þessu máli, en við teljum, eins og málum er háttað nú, þessa breyt. vera þó heldur til bóta.