21.04.1970
Efri deild: 75. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1334 í B-deild Alþingistíðinda. (1856)

145. mál, sala Eystra-Stokkseyrarsels og hluta af Vestra-Stokkseyrarseli

Frsm. (Steinþór Gestsson):

Herra forseti. Um það frv., sem hér liggur fyrir til 2. umr., þarf ég ekki að hafa ýkjamörg orð. Ég lýsti því þegar við 1. umr. hér í þessari hv. d., hver rök lágu til þess, að þetta frv. var fram borið. Landbn. hefur haft frv. til meðferðar og leitað umsagnar um það, bæði frá landnámsstjóra og jarðeignadeild ríkisins, og eru umsagnir beggja þeirra aðila jákvæðar. N. varð og sammála um að mæla með því við hv. d., að frv. yrði samþ.