29.04.1970
Neðri deild: 89. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1335 í B-deild Alþingistíðinda. (1865)

145. mál, sala Eystra-Stokkseyrarsels og hluta af Vestra-Stokkseyrarseli

Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):

Herra forseti. Þetta mál er komið frá Ed. og fékk þar venjulega athugun. Leitað var umsagna bæði Landnámsins og jarðeignadeildarinnar, og mæltu báðar þær stofnanir með því, að frv. yrði samþ., svo og hreppsnefnd viðkomandi byggðarlags. Landbn. mælir einhuga með því, að þetta frv. nái fram að ganga.