16.03.1970
Neðri deild: 60. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1353 í B-deild Alþingistíðinda. (1910)

56. mál, gjöld til holræsa og gangstétta á Akureyri

Frsm. (Bragi Sigurjónsson):

Herra forseti. Frv. þetta, sem fjallar um gjöld til holræsa og gangstétta á Akureyri, hefur legið fyrir heilbr.- og félmn. og hún afgr. það með svofelldu nál.:

N. hefur fjallað um frv. þetta og sent það til umsagnar Sambands ísl. sveitarfélaga. Mælir stjórn þess með samþykkt þess, en telur e. t. v. nauðsynlegt að setja nánari ákvæði um upphæð skattsins í frv., en frv. gerir hins vegar ráð fyrir að slíkt verði gert í reglugerð.

N. leggur til, að frv. verði samþykkt. Þrír nm., Jón Kjartansson, Hannibal Valdimarsson og Jónas Árnason, hafa gert fyrirvara á samþykkt sinni.