29.04.1970
Neðri deild: 90. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1360 í B-deild Alþingistíðinda. (1949)
188. mál, sala Fagraness í Öxnadalshreppi
Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):
Herra forseti. Það þarf ekki langt mál um þetta frv. Það var heimilað með lögum fyrir nokkrum árum að selja þessa jörð öðrum manni, en sú heimild var aldrei notuð. Varðandi þetta frv. nú er það að segja, að fyrir liggja meðmæli frá Landnámi ríkisins og jarðeignadeild ríkisins og mjög ákveðin meðmæli frá hreppsnefnd Öxnadalshrepps um að heimila þessa sölu, og landbn. hefur athugað málið og sér enga ástæðu til að hindra, að það nái fram að ganga, og leggur því til, að frv. verði samþ.