30.04.1970
Neðri deild: 94. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1364 í B-deild Alþingistíðinda. (1974)
214. mál, félagsheimili
Frsm. (Benedikt Gröndal):
Herra forseti. Frv. um breyt. á l. um félagsheimili er nátengt frv. um skemmtanaskatt, sem hér var til afgreiðslu fyrr á þessum fundi, og þarf að fylgja því. Menntmn. hefur litið á frv. þetta og er sammála um að mæla með samþykkt þess. Nm. áskilja sér þó venjulegan fyrirvara um að flytja brtt. eða fylgja þeim, sem fram kunna að koma.