25.04.1970
Efri deild: 79. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1395 í B-deild Alþingistíðinda. (1999)
215. mál, skemmtanaskattur
Páll Þorsteinsson:
Herra forseti. Ég hafði nú búizt við því, að 3. umr. þessa máls yrði ekki látin fara fram fyrr en eftir helgina. En úr því að hæstv. forseti ákveður, að hún fari fram nú, þá er það ekki ætlun mín að tefja málið, hvorki með langri ræðu né flóknum tillöguflutningi.
Ég gerði grein fyrir skoðun minni á þessu máli við 2. umr. og lagði þá sérstaklega áherzlu á það, að ég teldi varhugavert að ákveða nú skattskyldu um skemmtanaskatt á öllu landinu, án þess að nánari athugun færi fram. Í samræmi við þessa skoðun bar ég, ásamt hv. 11. þm. Reykv., fram brtt. við 1. gr. þessa frv., en hún var felld við atkvgr. eftir 2. umr. hér í þessari hv. deild.
Sú skoðun hafði komið fram í umr. í hv. menntmn., að vel kæmi til greina að gera nokkurn mun á skemmtunum, sem taldar eru í þeim 5 flokkum, sem í 2. gr. frv. getur, þannig að skemmtanir, sem taldar eru upp í 1. og 2. flokki nytu þeirrar sérstöðu að vera undanþegnar skattgjaldi í sveitarfélögum, þar sem íbúafjöldi væri innan við 1500, en í 1. flokki eru þessar skemmtanir: Hljómleikar og söngskemmtanir, sjónleikar, danssýningar, fyrirlestrar og upplestrar og loks hlutaveltur, í hverju skyni sem haldnar eru. Og í öðrum flokki eru kvikmynda- og skuggamyndasýningar.
Ég hafði ætlað mér að freista þess nú við þessa umr. að koma fram breyt. á frv., sem fer í þá átt, að þessar skemmtanir, sem greindar eru í 1. og 2. flokki, nytu þeirrar sérstöðu um skattinnheimtu, sem ég hef nú bent á, og hef hér undir höndum till., sem fjallar um þetta efni. En nú hefur hv. samnefndarmaður minn í menntmn., hv. 3. landsk. þm., borið fram skriflega brtt. um sama efnisatriði, þó hún sé ofurlítið öðruvísi orðuð en mín.
Ég teldi nú eðlilegast, að umr. yrði frestað og að þessar till. yrðu athugaðar saman. Hins vegar skal ég ekki leggja kapp á það, ef forseti leggur áherzlu á að hraða málinu, og tel þá koma til athugunar, að ég drægi mína till. til baka. (Gripið fram í.) Ja, ég hafði gert hér till., sem við ætluðum að gerast flm. að, ég og hv. 11. þm. Reykv. (Forseti: Það mætti nú fresta umr. örstutta stund, ef menn vildu ræða saman um till.) Till. er þannig, að aftan við 1. gr. bætist ný málsgr., svo hljóðandi:
„Í sveitarfélögum, sem hafa færri en 1500 íbúa, skal ekki innheimta skatt af verði aðgöngumiða að skemmtunum, sem taldar eru í 1. og 2. flokki.“
Hún er stíluð annars staðar inn í frv. og öðruvísi orðuð, en fjallar um alveg sama efnisatriði. (Forseti: Þ. e. sama efnisatriði og brtt. 3. landsk. þm.)