02.03.1970
Sameinað þing: 36. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1634 í B-deild Alþingistíðinda. (2101)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Mér hefur kannske misheyrzt, en mér heyrðist á hæstv. ráðh., að hann hefði fengið upplýsingar um þessa væntanlegu fsp. núna eftir hádegið, en ég vil taka það fram, að það var í morgun strax, sem ég talaði við ráðuneytisstjórann og bað hann að koma þessu á framfæri við rétta hlutaðeigendur.
Ég lýsi ánægju minni yfir því, að þetta mál hefur verið til athugunar, sjálfsagt á réttum stöðum, síðan í morgun, og ég lýsi ánægju minni yfir því, að nú er ákveðið, að Árni Friðriksson fari svo að segja strax austur. Ég vil leggja áherzlu á, að það þarf að skipuleggja þessi mál þannig, að það sé stöðugt skip á verði norðaustan og austan við landið til þess að athuga um nýju göngurnar. Það er ekki hægt að sætta sig við annað en að það sé stöðugt á verði þar skip, og það er náttúrlega komið í ljós, að það er of lítið að treysta á Árna Friðriksson einan í því efni allan veturinn og fram á vor, því að það er ekki hægt að gera þá kröfu til manna, að þeir séu allan þann tíma úti á sjó og skreppi aldrei frá. Mér sýnist augljóst á þessu o. fl., að það þurfi að stefna að því að hafa í þessu tvö skip, Árna Friðriksson og annað skip með.