04.05.1970
Neðri deild: 97. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1634 í B-deild Alþingistíðinda. (2103)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Jónas Árnason:

Herra forseti. Ég hef kvatt mér hljóðs utan dagskrár til þess að beina til hæstv. ríkisstj. eða nánar tiltekið hæstv. utanrrh. fsp.: Hverjar eru skoðanir eða hver er afstaða hæstv. ríkisstj. varðandi þá atburði, sem nú hafa orðið í Suðaustur-Asíu, á því svæði, sem nefnt hefur verið Indó-Kína, innrás bandarísks herliðs í Kambódíu?