19.01.1970
Neðri deild: 38. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1645 í B-deild Alþingistíðinda. (2112)

Afgreiðsla mála úr nefndum

forseti (SB):

Ég vil nota tækifærið til þess að beina þeirri ósk til formanna hv. þingnefnda d. að hraða störfum. Allmörg mál eru í nefndum og sum hafa verið þar alllengi. Leyfir forseti sér að óska þess eindregið, að hv. þn. taki nú rögg á sig og gangi rösklega til verks og skili nál. um þau mál, sem hjá þeim liggja.