15.10.1969
Sameinað þing: 3. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1717 í B-deild Alþingistíðinda. (2171)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 14. okt. 1969.

Friðjón Þórðarson, 4. þm. Vesturl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Vesturlandskjördæmi, Ásgeir Pétursson sýslumaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Ásgeir Pétursson sýslumaður hefur áður tekið sæti á Alþ. sem varamaður fyrir Friðjón Þórðarson, 4. þm. Vesturl., og kjörbréf hans verið rannsakað. Hann tekur nú sæti á þinginu sem 4. þm. Vesturl., og leyfi ég mér að bjóða hann velkominn til þingstarfa.