03.11.1969
Sameinað þing: 9. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1720 í B-deild Alþingistíðinda. (2178)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 31. okt. 1969.

Vilhjálmur Hjálmarsson, 5. þm. Austf., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Vegna mikilla anna heima fyrir er mér nauðsynlegt að hverfa af þingi næstu tvær vikur og leyfi ég mér því að biðja um fjarvistarleyfi. Þar sem 1. varaþm. Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Tómas Árnason hrl., dvelst nú vestanhafs í opinberum erindum, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 2. varaþm. Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Kristján Ingólfsson kennari á Hallormsstað, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf til handa Kristjáni Ingólfssyni, útgefið af yfirkjörstjórn Austurlandskjördæmis, liggur hér fyrir og vil ég biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]