03.11.1969
Sameinað þing: 9. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1721 í B-deild Alþingistíðinda. (2179)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman á fund og kannað kjörbréf fyrir Kristján Ingólfsson kennara á Hallormsstað, sem er 2. varaþm. Framsfl. í Austurlandskjördæmi, en óskað er eftir því, að hann taki sæti í forföllum 5. þm. Austf., Vilhjálms Hjálmarssonar, þar eð 1. varaþm. er erlendis í opinberum erindum svo sem lýst var hér áðan. Kjörbréfanefnd hefur ekkert fundið athugavert við þetta kjörbréf og leggur til, að það verði samþ. og kosningin tekin gild.