17.12.1969
Neðri deild: 28. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1722 í B-deild Alþingistíðinda. (2184)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

forseti (SB):

Forseta hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 16. des. 1969.

Þar sem ég vegna embættisanna mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Norðurl. v., Eyjólfur Konráð Jónsson ritstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Gunnar Gíslason,

2. þm. Norðurl. v.

Til forseta neðri deildar.“

Kjörbréf Eyjólfs Konráðs Jónssonar ritstjóra hefur áður verið rannsakað, og býð ég hann velkominn til setu í hv. þd.