01.04.1970
Sameinað þing: 42. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1724 í B-deild Alþingistíðinda. (2190)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

forseti (ÓB):

Ég býð hv. alþm. velkomna til þingstarfa á ný að loknu páskaleyfi.

Frá forseta Ed. hefur svo hljóðandi tilkynning borizt:

„Einar Ágústsson, 11. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna veikinda mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Kristján Thorlacius deildarstjóri, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Jónas G. Rafnar,

forseti efri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kristján Thorlacius hefur áður átt sæti á Alþ., þannig að ekki þarf að rannsaka kjörbréf, og býð ég hann velkominn til þingstarfa.