22.04.1970
Sameinað þing: 46. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1726 í B-deild Alþingistíðinda. (2196)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 21. apríl 1970.

Axel Jónsson, 4. þm. Reykn., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna veikinda mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi, Oddur Andrésson bóndi, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Jónas G. Rafnar,

forseti efri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Varamaður Axels Jónssonar, Oddur Andrésson bóndi, hefur áður setið á Alþ. og þá farið fram rannsókn á kjörbréfi hans. Ég leyfi mér að bjóða hann velkominn á ný til þingstarfa.