19.12.1969
Neðri deild: 35. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1732 í B-deild Alþingistíðinda. (2216)

Þinghlé

forseti (SB):

Þar sem þetta verður væntanlega síðasti fundur hv. þd. fyrir jólahelgi, leyfi ég mér að þakka öllum hv. þdm. ánægjulega og góða samvinnu við mig sem forseta það sem af er þessu þingi. Ég leyfi mér jafnframt að óska hv. þdm. og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og nýárs. Utanbæjarþm. árna ég góðrar heimferðar og heimkomu og læt að lokum þá ósk í ljós, að vér megum allir heilir hittast á þingi á nýju ári.