19.12.1969
Sameinað þing: 28. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1733 í B-deild Alþingistíðinda. (2222)

Þinghlé

Forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svo hljóðandi bréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 90. löggjafarþings, frá 19. desember 1969 eða síðar, ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 12. janúar 1970.

Gjört á Bessastöðum, 19. des. 1969.

Kristján Eldjárn.

Bjarni Benediktsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkv. þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því, að fundum þessa Alþingis, 90. löggjafarþings, er frestað frá 19. des. og verður þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 12. jan. 1970.

Leyfi ég mér að árna hv. alþm. og starfsmönnum þingsins svo og landslýð öllum gleðilegra jóla og farsæls nýárs.