04.05.1970
Neðri deild: 97. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1737 í B-deild Alþingistíðinda. (2236)

Starfslok deilda

forseti (MÁM):

Þar sem þetta verður síðasti fundur hv. þd. að þessu sinni, leyfi ég mér að þakka öllum hv. þdm. svo og hæstv. ríkisstj. fyrir góða og ánægjulega samvinnu við mig sem forseta þann tíma, sem ég hef gegnt þeim störfum á þessu þingi. Ég vil færa skrifurum þingsins þakkir fyrir störf þeirra, svo og starfsfólki öllu. Ég leyfi mér að óska hv. þdm. og fjölskyldum þeirra alls velfarnaðar, og utanbæjarmönnum óska ég góðrar heimferðar og heimkomu.