17.04.1970
Efri deild: 73. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í C-deild Alþingistíðinda. (2342)

38. mál, togarakaup ríkisins

Frsm. meiri hl. (Jón Árm. Héðinsson) :

Herra forseti. Ég tel óþarfa að hafa langan formála fyrir þessu nál., en það er þskj. 589 og kemur fram í því, að meiri hl. sjútvn. vill vísa frv. til hæstv. ríkisstj., og ég get leyft mér að vitna í þau rök, sem ég hafði hér áðan varðandi afgreiðslu 33. máls.