27.04.1970
Neðri deild: 85. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í C-deild Alþingistíðinda. (2396)
102. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. (Pálmi Jónsson) :
Herra forseti. Fjhn. hv. d. hefur athugað frv. þetta, sem fjallar um breytingar á l. um tekju- og eignarskatt og felur í sér heimild til einstæðra mæðra um sérstakan frádrátt á skattskyldum tekjum þeirra. Ég þarf ekki að hafa mörg orð um mína afstöðu til þessa frv. Það var flutt af mér og hv. 10. þm. Reykv. snemma á þessu þingi. Ég lýsti minni afstöðu til þess hér fyrir fáum dögum við umr. um tekju- og eignarskattsfrv. ríkisstj., sem þá var til 2. umr., og komu fram í þeirri ræðu minni mín sjónarmið varðandi frv. En n. er sammála um það að leggja til, að því verði vísað til ríkisstj. í trausti þess, að það verði tekið til jákvæðrar afgreiðslu við þá endurskoðun skattal., sem í gangi er og ætlað er, að ljúki fyrir næsta reglulegt Alþingi. Rétt er að taka það fram, að 1 nm., hv. 4. þm. Austf., var fjarstaddur, er málið var afgreitt úr n.
Með tilliti til þess, er ég ræddi um þetta frv. hér fyrir fáum dögum, þá sé ég ekki ástæðu til þess að hafa um það fleiri orð og legg til fyrir hönd n., að því verði vísað til ríkisstj.