12.01.1970
Sameinað þing: 29. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 248 í D-deild Alþingistíðinda. (2981)

46. mál, heimildarkvikmynd um Alþingi

Frsm. (Bragi Sigurjónsson):

Herra forseti. Till. sú til þál., sem hér er til afgreiðslu, er flutt af Benedikt Gröndal, Eyjólfi Konráð Jónssyni, Magnúsi Kjartanssyni og Þórarni Þórarinssyni og fjallar um heimildarkvikmynd um Alþ. Till. fylgir grg. frá flm., og sé ég ekki ástæðu til að rekja hana, en allshn. hefur fjallað um till. og orðið sammála um að leggja til, að hún verði samþ. Einn nm. ritaði þó undir með fyrirvara.