12.01.1970
Sameinað þing: 29. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 248 í D-deild Alþingistíðinda. (2982)

46. mál, heimildarkvikmynd um Alþingi

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég hef skrifað undir þetta nál. með fyrirvara. Ég er að sjálfsögðu ekki mótfallinn því, að einhvern tíma verði gerð heimildar- og fræðslukvikmynd um Alþ., en fyrirvari minn varðar kostnaðinn við þessa kvikmyndatöku, að honum verði stillt í hóf. Ég hef hreyft því í n., að það kynni að vera eðlilegt að setja þessa heimildarkvikmyndatöku í samband við 1100 ára afmælishátíðina, sem haldin mun verða hér á landi, en við nánari athugun hef ég ekki talið ástæðu til þess að bera fram brtt. um það efni.