14.01.1970
Sameinað þing: 30. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í D-deild Alþingistíðinda. (2998)

60. mál, flutningur afla af miðum

Frsm. (Bragi Sigurjónsson):

Herra forseti. Till. sú, sem hér er til afgreiðslu, um flutning afla af miðum og hafna á milli, var flutt af Vilhjálmi Hjálmarssyni, Helga Seljan, Páli Þorsteinssyni og Eysteini Jónssyni. Allshn. fékk till. til athugunar og sendi hana ýmsum aðilum, svo sem fiskimálaráði, L.Í.Ú. og síldarútvegsnefnd, og svöruðu þessir aðilar, og að athuguðum svörum varð allshn. sammála um að leggja til, að till. yrði samþ.