28.01.1970
Sameinað þing: 32. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 262 í D-deild Alþingistíðinda. (3019)
19. mál, vísitala byggingarkostnaðar
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Í fjarveru frsm. hef ég verið beðinn að fylgja þessari till. úr hlaði með örfáum orðum fyrir hönd allshn.
N. hefur fjallað um till. þessa og kallað á sinn fund hagstofustjóra og forstjóra Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins og hafa þeir báðir lýst sig samþykka efni till. og hagstofustjóri tekið fram, að þetta verk væri í raun og veru þegar hafið. Að þessu öllu athuguðu ákváðu nm. að mæla með því, að till. yrði samþ. óbreytt.