04.03.1970
Sameinað þing: 37. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 289 í D-deild Alþingistíðinda. (3058)
64. mál, læknisþjónusta í strjálbýli
Frsm. (Gísli Guðmundsson):
Herra forseti. Till. sú, sem hér liggur fyrir á þskj. 69 um bætta læknisþjónustu í strjálbýli, er flutt af tveimur hv. þm. Vestf. og er þess efnis, að skorað verði á ríkisstj. að athuga möguleika á því að fá lækna frá nálægum löndum, og þá fyrst og fremst hinum Norðurlöndunum, til þess að gegna um lengri eða skemmri tíma læknaþjónustu í einstökum læknishéruðum, sem nú eru læknislaus. Í grg. þessarar till. segir, að þegar hún var flutt á öndverðu þingi, hafi 12 læknishéruð verið læknislaus, og á því mun ekki hafa orðið mikil breyting. Allshn. telur, að hér sé um svo alvarlegt mál að ræða, að rétt sé að gera þá tilraun, sem till. fjallar um, og leggur til, að hún verði samþ., en einn nm. var fjarstaddur, þegar málið var afgreitt.