03.12.1969
Sameinað þing: 18. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 752 í D-deild Alþingistíðinda. (3653)

951. mál, sjálfvirkt símkerfi

Ásgeir Bjarnason:

Herra forseti. Í þeirri skýrslu, sem hæstv. samgmrh. las hér áðan, gat hann þess, að sjálfvirkt símakerfi ætti að koma til Búðardals í 3. áfanga, sem hann kallaði. Nú minnir mig, að fyrir nokkrum árum væri það upplýst hér á Alþ., að sjálfvirkt símakerfi ætti að koma til Búðardals árið 1967, og enn þá er þetta sjálfvirka kerfi ekki komið. Í tilefni af því leyfi ég mér að spyrja hæstv. ráðh. að því, hvenær þess sé að vænta, að sjálfvirkt símakerfi komi til Búðardals innan þess 3. áfanga, sem ráðh. gat um áðan.