03.12.1969
Sameinað þing: 18. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 752 í D-deild Alþingistíðinda. (3655)

951. mál, sjálfvirkt símkerfi

Ásgeir Bjarnason:

Herra forseti. Í tilefni af því, sem hæstv. ráðh. sagði, þá vil ég skora á hann að leggja sig fram um það, að staðið verði við það, að Búðardalur fái sjálfvirkt símakerfi þegar á næsta ári. Það er búið að dragast það lengi, að það er ekki viðunandi, að slíku verði frestað frá ári til árs, eins og raun hefur borið vitni um á undanförnum árum.