03.12.1969
Sameinað þing: 18. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 755 í D-deild Alþingistíðinda. (3663)

85. mál, endurskoðun laga um húsnæðismál

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Varðandi fyrri munnlegu fsp. vil ég lýsa því yfir, að eftir því sem mér er bezt kunnugt, eru þessar till. ekki samkomulagsmál hjá húsnæðismálastjórn. Í öðru lagi varðandi tekjuþörfina, þá eru ekki í þessum till. sérstakar till. um auknar tekjur. Það er verkefni ríkisstj. að taka ákvörðun um þann lið málsins.