28.01.1970
Sameinað þing: 32. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 795 í D-deild Alþingistíðinda. (3725)

910. mál, stofnlán fiskiskipaflotans

Fyrirspyrjandi (Geir Gunnarsson):

Herra forseti. Á þskj. 131 flytjum við 3 þm. Alþb. fsp. til sjútvrh. um afborganir og vexti af stofnlánum fiskiskipaflotans. Þessi fsp. er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta: „Hve miklu er áætlað, að afborganir og vextir af stofnlánum fiskiskipa nemi á árinu 1969: a) af togurum, b) af öðrum fiskiskipum?“