10.12.1969
Neðri deild: 22. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í B-deild Alþingistíðinda. (377)

115. mál, iðja og iðnaður

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Varðandi þessa síðustu fsp., sem beint var til mín, þá vil ég segja það strax, að ég mundi, meðan ég fer með þessi mál, meta það í hverju einstöku tilfelli, hvort ég teldi það hagstætt fyrir Íslendinga og íslenzkan atvinnurekstur, að erlendum aðilum væri hér veitt aðstaða til atvinnurekstrar.