04.03.1970
Sameinað þing: 37. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í D-deild Alþingistíðinda. (3772)
915. mál, fiskiðnskóli
Fyrirspyrjandi (Ingvar Gíslason):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. þessi svör, en það fór sem mig grunaði, að lítið hefur verið gert í því að framkvæma þær till., sem fram komu hjá fiskiðnskólanefnd fyrir þrem árum, og ég vil nú strax í upphafi vita þann seinagang, sem á þessu hefur orðið. Ég tel, að hér hafi verið þannig að unnið, að það sé full ástæða til þess að víta það hér á Alþ. Og það, sem hæstv. ráðh. er nú að segja um framkvæmdir, er hann hyggst gera, þá held ég, a.m.k. svona í fyrsta sinn sem maður heyrir þetta, að þá sé erfitt að átta sig á því, til hvers það muni leiða eða hvort það sé til bóta miðað við það álit, sem liggur fyrir hjá fiskiðnskólanefndinni. A.m.k. þarf það rækilegrar athugunar við. Og greinilegt er, að það mál er allt saman óundirbúið og ekki líklegt, að það geti legið fyrir alveg á næstunni, ef á að vinna það allt upp frá rótum. Ég held, að það hefði verið skynsamlegra af hæstv. ríkisstj. að halda sig við nál., eins og það liggur fyrir í megindráttum, því að þeir, sem að því unnu, voru, eins og ég tók fram og raunar öllum er kunnugt, sérfróðir menn og áhugamenn um þetta efni og fulltrúar fyrir fiskiðnaðinn í landinu á mjög breiðum grundvelli, og þessir menn komust að niðurstöðu og samkomulagi, sem vissulega hefði verið ástæða til að halda sig við.
Hæstv. ráðh. minntist á fiskiðnaðarnámskeiðin, sem haldin hafa verið í Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins nú að undanförnu. Hér er að vísu um gagnlega starfsemi að ræða, en ákaflega ófullkomna sem kennslu í fiskiðnfræðum og varla umtalsverða, enda er það líka jafnkunnugt, að slík námskeið og jafnvel engu síðri hafa verið haldin hér í meira en 20 ár á vegum sjútvrn. og jafnvel staðið lengur og verið engu síður til gagns, þannig að hér er ekki um neitt nýtt að ræða, nema síður sé, og getur ekki verið um neitt framhald að ræða af till. fiskiðnskólanefndar.
Ég vil endurtaka það, að brýna nauðsyn ber til þess að taka þessi mál alveg sérstökum tökum, og mitt álit er það, að ríkisstj. eigi að halda sig sem mest að till. fiskiðnskólanefndarinnar. Það virðist flestum, sem kynnt hafa sér það mál, að það væri til mikilla bóta, ef það mætti framkvæma, og það sýnist vera auðveldara að halda sig að þeim áætlunum, sem þegar er búið að gera, heldur en að fara að gera áætlanir nú alveg upp á nýtt og raunar þannig, að menn vita ekki fyllilega, að hverju stefnt yrði eða hvað úr því yrði. Ég tel því, að það ætti sérstaklega að halda sig að því, sem fiskiðnskólanefndin á sínum tíma lagði til í þessu máli.