11.03.1970
Sameinað þing: 38. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 850 í D-deild Alþingistíðinda. (3812)

173. mál, aðild ríkisfyrirækja að Vinnuveitendasambandi Íslands

Fyrirspyrjandi (Lúðvík Jósefsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja á þskj. 367 fsp. til fjmrh. um það, hvaða ríkisfyrirtæki séu aðilar að Vinnuveitendasambandi Íslands og hvað þau hafi hvert um sig greitt til Vinnuveitendasambandsins árin 1967, 1968 og 1969. Ég tel mikilvægt að fá hér ú Alþ. upplýsingar um þessi efni og vænti, að hæstv. fjmrh. sjái sér fært að veita þessar upplýsingar.