22.04.1970
Sameinað þing: 46. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 932 í D-deild Alþingistíðinda. (3906)

926. mál, niðurlagningarverksmiðja ríkisins

Fyrirspyrjandi (Lúðvík Jósefsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir gefnar upplýsingar um málið. Ég mun ekki fara að ræða málið hér eða lýsa mínum skoðunum í sambandi við það, til þess er ekki tími nú, en væntanlega gefst tími og tækifæri til þess, þegar frv. verður lagt hér fyrir þingið um nýja skipan í sambandi við rekstur þessa fyrirtækis.