02.04.1970
Neðri deild: 67. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 583 í B-deild Alþingistíðinda. (621)
137. mál, verslun með ópíum o.fl.
Frsm. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. L. um tilbúning og verzlun með ópíum o.fl. voru samþ. 20. júní 1923. Þessi l. voru byggð á alþjóðasamþykkt, sem gerð var í Haag árið 1912, um meðferð og sölu á ópíum. Á árinu 1968 var gerð breyt. á þessum l. á þann veg, að dómsmrn. getur úrskurðað, að ákvæði l. þessara gildi um öll efni, hvort sem þau eru afleidd af morfíni, kokaíni eða söltum þeirra eða ekki, enda hafi sannazt við vísindalega rannsókn, að misnota megi þau á líkan hátt, eða þau hafi skaðvænleg áhrif sem efni þau, sem nefnd eru í fyrrgreindum l.
Ekkert ákvæði er í l. þessum um bann við verzlun eða meðferð lyfja þeirra og efna, sem l. taka til eða úrskurða má, að falli undir ákvæði þeirra, og ólöglega eru innflutt eða framleidd, né heldur hafa þau ákvæði um upptöku slíks varnings eða ágóða af verzlun með hann. Því er talið nauðsynlegt að setja í lögin, að óheimilt sé að hafa undir höndum lyf og efni, sem falla undir l. og ólöglega eru innflutt eða framleidd, og lýsa óheimila hvers konar aðra meðferð slíks varnings. Þá er einnig í gr. ákvæði um upptöku á slíkum varningi til ríkissjóðs svo og hagnaði af verzlun með hann.
Í 2. gr. frv. er breyting á sektaákvæðum. Þau eru orðin of lág, því að hámarksrefsing, eins og l. voru upprunalega samþykkt, var að krónutölu ekki nema 10.000 kr. Lagt er til með þessu frv., að þau verði hækkuð upp í 1 milljón kr. Þá er í núgildandi l. aðeins varðhald, þ.e.a.s. fangelsi, í þeim skilningi hegningarlagaákvæða fyrir gildistöku hegningarl. frá 1940, sem nú er verulega breytt.
Enn fremur þá er það nýmæli, að það er skilgreint í gr., hvað telst stórfellt brot í l. þessum, en refsiákvæði þetta er í samræmi við refsiákvæði nágrannalandanna við sams konar brotum, en þar hafa slík ákvæði verið sett í l. nú á undanförnum árum, allt fram á síðasta ár. Þessi breyting á l. er því til samræmis við þær breytingar, sem nágrannalöndin hafa verið að gera.
Allshn. er sammála um að mæla með samþykkt frv., þó með þeirri breyt. á 2. gr. frv., að í stað orðsins „hóps“ á tveimur stöðum í 1. málsgr. komi „margir“.
N. ræddi þetta frv. og þessi mál mjög ítarlega við landlækni og ráðunaut heilbrigðisstjórnarinnar í lyfjamálefnum, og enn fremur óskaði Barnaverndarráð Íslands eftir því að ræða við n. Allir þessir aðilar, sem n. ræddi við, voru á einu máli um það, að brýn nauðsyn sé á því að gera nú þegar þá breyt. á þessum l., sem þetta frv. gerir ráð fyrir. Hins vegar kom það skýrt fram í viðræðum við n. og það er einnig skoðun allra nm., að nauðsyn sé að vinna að heildarlöggjöf um þessi efni, en það tekur svo langan tíma, að við teljum, að þessi breyting sé nauðsynleg og megi Alþ., sem nú situr, ekki ganga fram hjá því að samþykkja þetta frv.
Þessi mál eru að verða mjög mikil erfiðleikamál hjá flestum þjóðum, og þau eru líka að verða það hjá okkur Íslendingum. Við verðum því að sameinast um það og taka höndum saman um að setja bæði sterka og ákveðna löggjöf og fylgja henni mjög vel eftir, því að það hlýtur að verða og vera léttara verk fyrir smáþjóð að koma í veg fyrir ofnotkun eiturlyfja en fyrir hinar stærri þjóðir, þar sem þessi mál eru orðin stór plága. En ekki er hægt að ná verulegum árangri, nema þjóðin sameinist í því að vinna ötullega að því að koma í veg fyrir, að þessi vágestur, eiturlyfjanotkunin, verði meiri í okkar landi en þegar er orðið.