13.04.1970
Efri deild: 68. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 607 í B-deild Alþingistíðinda. (684)

167. mál, Bjargráðasjóður Íslands

Frsm. (Steinþór Gestsson):

Herra forseti. Við 2. umr. um þetta frv. hafði ég framsögu fyrir heilbr.- og félmn. Eftir að 2. umr. var lokið, var athygli mín vakin á því, að villa er í fyrirsögn frv., og sér maður það glöggt, ef lesin er saman grg. eða aths. með frv. og fyrirsögnin, að þar er vitnað til rangs númers í l., þar sem í frv. segir, að það sé breyting á l. nr. 32, en á að vera breyting á l. nr. 82.

Því hef ég leyft mér, af því ekki náðist til n. í heild, að flytja brtt. til þess að leiðrétta þessa villu í fyrirsögninni, og er þá brtt. að finna í þskj. 541, og vil ég leggja til, að sú brtt. verði samþ.