06.04.1970
Neðri deild: 68. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 610 í B-deild Alþingistíðinda. (694)

161. mál, dýralæknar

Jónas Pétursson:

Herra forseti. Þetta frv. til l. um dýralækna hefur legið fyrir landbn. hv. d. og hún hefur athugað það. Það má geta þess, að það var annað frv., sem kom frá hv. Ed., sem einnig var um breyt. á l. um dýralækna. Það var búið að vísa því frv. hér frá þessari hv. d. til landbn. einnig, og það var niðurstaða hjá n. að fella það frv. með brtt. inn í frv. hæstv. ríkisstj. um dýralækna, eins og fram kemur í brtt. n. á þskj. 481. N. athugaði smávægilegar breytingar, sem bent var á af hálfu Búnaðarþings, en taldi ekki ástæðu að svo komnu að flytja aðrar brtt. en þá, sem hér liggur fyrir, og leggur því til, að frv. verði samþ. með þeirri breyt., sem þar greinir.