24.04.1970
Efri deild: 77. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 615 í B-deild Alþingistíðinda. (717)
181. mál, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
Frsm. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Efni þessa frv. er það að veita ríkisstj. heimild til þess að hækka kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og framlag hans til Alþjóðabankans. Eins og nál. á þskj. 639 ber með sér, mælir fjhn. einróma með því, að frv. verði samþ.