06.04.1970
Efri deild: 65. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 645 í B-deild Alþingistíðinda. (752)
196. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar 1970
Gils Guðmundsson:
Herra forseti. Ég er nú ekki við því búinn að fara að ræða þessa framkvæmdaáætlun almennt eða marga liði hennar, ekki a.m.k. á þessu stigi málsins. Ég kvaddi mér hljóðs eingöngu til þess að spyrjast fyrir hjá hæstv. fjmrh. um eitt sérstakt atriði þessarar áætlunar.
Þannig er mál með vexti, eins og mörgum er kunnugt, að á hinu svonefnda Krýsuvíkur-Trölladyngjusvæði á Reykjanesi hefur farið fram nokkur undirbúningsathugun í sambandi við það mikla jarðhitasvæði, sem þar virðist vera. Sú undirbúningsathugun beinist að tvennu: Í fyrsta lagi að athuga, hvort þarna er um að ræða jarðhita handa hugsanlegri sjóefnaverksmiðju, sem verið er að rannsaka, hvort hagkvæmt kunni að vera að stofnsetja. En jafnframt er þarna um að ræða rannsóknir, sem gætu komið að gagni hinum mörgu og fjölmennu bæjar- og sveitarfélögum á Reykjanessvæðinu og raunar hér á höfuðborgarsvæðinu öllu, ef svo reyndist, sem menn gera sér vonir um, að þarna sé um mjög verulegan jarðhita að ræða.
Ég hygg, að ég fari rétt með, að það sé gert ráð fyrir, að boranir á þessu svæði og rannsóknir muni kosta um 36 millj. kr. En á fjárlögum þessa árs er í heimildargrein heimild til þess að taka allt að 10 millj. kr. að láni til þessarar sérstöku framkvæmdar nú í ár. Ég sé ekki betur en hér í framkvæmdaáætluninni sé hins vegar aðeins gert ráð fyrir að nota af þessum 10 millj. 4.1 millj. kr. á þessu ári. Ástæðan er mér óljós. Hún kann að vera sú, að þeir aðilar, sem koma til með að hafa þessar framkvæmdir með höndum, telji sig ekki geta annað meiri verkefnum á þessu ári. Um þetta vildi ég spyrja hæstv. ráðh., ef hann hefði tök á að upplýsa nú eða síðar, hver ástæðan er. Ástæðan getur vissulega ekki verið sú, að það sé ekki full þörf á að vinna þarna fyrir þessar 10 millj., sem heimildin segir til um, því að það er vissulega full ástæða til þess, og ég held, að þarna sé um svo mikilvægt mál að ræða, að full ástæða sé til að hraða þessum rannsóknum, eins og þörf er á. Það var aðeins þetta atriði, sem ég vildi á þessu stigi máls vekja athygli á í sambandi við framkvæmdaáætlun.