30.01.1970
Neðri deild: 48. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 764 í B-deild Alþingistíðinda. (881)

29. mál, gerðardómur í kjaradeilu atvinnuflugmanna

Frsm. meiri hl. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Samgmn. þessarar hv. d. hefur haft mál þetta til meðferðar, en það er frv. til l. um skipan gerðardóms í kjaradeilu atvinnuflugmanna og flugvélstjóra og íslenzkra flugfélaga. Um þetta mál þarf ekki að hafa mörg orð. Þetta er aðeins frv., sem flutt er til staðfestingar brbl. og lagt fyrir Alþ. samkvæmt skýrum ákvæðum 28. gr. stjórnarskrárinnar. N. fjallaði nokkuð um þetta mál, en gat ekki náð samstöðu og skilar tveimur álitum. Álit meiri hl. var á þá leið, að við leggjum til að frv. verði samþ. óbreytt.