01.04.1971
Neðri deild: 80. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 932 í B-deild Alþingistíðinda. (1008)

250. mál, stimpilgjald

Frsm. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Þetta frv. er af sömu rótum runnið og það, sem ég mælti fyrir nú rétt áður, þ. e. a. s. vegna breyt. á fasteignamati, sem tekur gildi nú 1. maí, þá er talið eðlilegt að breyta lögum um stimpilgjöld til samræmis við það breytta fasteignamat.