01.04.1971
Neðri deild: 80. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 934 í B-deild Alþingistíðinda. (1028)

246. mál, bankavaxtabréf

Frsm. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Eins og fram kemur á þskj. 738, mælir fjhn. þessarar d. með því að frv. verði samþ. óbreytt. Hér er um heimild til handa Landsbanka Íslands til þess að gefa út nýjan flokk bankavaxtabréfa að ræða.