22.03.1971
Efri deild: 71. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 954 í B-deild Alþingistíðinda. (1059)

258. mál, tæknimenntaðar heilbrigðisstéttir

Frsm. (Jón Árm. Héðinsson):

Herra forseti. Eins og fram kemur á nál. nr. 564, lagði heilbr.- og félmn. það til einróma, að frv. verði vísað til 3. umr. óbreyttu. Við ræddum aðeins um starfsheitið, tæknimenntaðar heilbrigðisstéttir, og við vorum ekki það hugmyndaríkir, að við vildum fara að breyta hér til um. Hæstv. heilbr.- og trmrh. minntist aðeins á það í framsöguræðu, að athuga mætti um hentugra nafn. Ef einhverjum hv. þm. hefur dottið í hug betra nafn, væri hægt að athuga það á milli umr. Að svo mæltu legg ég til, eins og áður segir, að frv. verði vísað til 3. umr. óbreyttu.