24.03.1971
Efri deild: 73. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 967 í B-deild Alþingistíðinda. (1126)

283. mál, eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum

Frsm. (Jón Árm. Héðinsson):

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. hefur fjallað um frv. til l. um eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum. Á þskj. 639 kemur fram, að n. er sammála um að mæla með frv. óbreyttu, og voru allir nm. á einu máli um, að hér væri stefnt í rétta átt og eðlilegt að hraða afgreiðslu málsins, svo að frv. næði fram að ganga. Að svo mæltu legg ég til, að frv. verði vísað til 3. umr.