03.04.1971
Neðri deild: 86. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1336 í B-deild Alþingistíðinda. (1469)

282. mál, fávitastofnanir

Frsm. (Bragi Sigurjónsson):

Herra forseti. Eins og fram var tekið, þegar mælt var fyrir þessu máli, frv. til l. um breyt. á l. um fávitastofnanir, þá er þetta fylgifrv. við almannatryggingalögin vegna þess, að í almannatryggingafrv., sem nú liggur fyrir Alþ., er gert ráð fyrir, að sjúkratryggingadeild Tryggingastofnunar ríkisins taki við þeim málum, sem áður lutu að nokkru leyti beint undir ríkið. Frv. þetta hefur áður farið í gegnum Ed. óbreytt og heilbr.- og félmn. Nd. hefur nýverið fjallað um málið og leggur einnig til, að það verði samþ. óbreytt.