06.04.1971
Neðri deild: 90. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1700 í B-deild Alþingistíðinda. (1721)

266. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Mér þótti að sjálfsögðu leiðinlegt að heyra það, að sú ósk mín hefði ekki rætzt, að hæstv. ráðh. mundi sofa vel í nótt, en ég sé, að hann hefur hugsað málið þeim mun betur og hugsað rétt, komizt að réttri niðurstöðu, og í eðlilegu áframhaldi af því fellst ég á það og meðflutningsmenn mínir að draga til baka þá brtt., sem við höfum lagt fram á þskj. 879, og sættum okkur við þá till., sem hæstv. ráðh. hefur flutt.